UMSÓKNAR- OG KAUPFERLI BÚSETURÉTTAR Í NÝBYGGINGUM

Sala á 41 búseturétti við Eirhöfða 3 og 5 hefst 25. mars. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti þriðjudaginn 7. apríl. Úthlutun fer svo fram 8. apríl, kl. 12:00 með rafrænum hætti.

Til að geta sótt um íbúð verður þú að vera félagsmaður en hægt er að skrá sig í Búseta hér GERAST FÉLAGI

Íbúðir í nýbyggingum Búseta eru auglýstar á föstu verði og félagsnúmer ræður röð umsækjenda.

SKREF 1 - Innskráning á mínar síður:

  • Til að sækja um íbúð, eina eða fleiri, þarf að skrá sig inn á mínar síður með rafrænum skilríkjum, Auðkennisappinu eða kennitölu og lykilorði.
  • Umsækjandi þarf að vera skuldlaus félagsmaður til að geta sótt um búseturétt.
  • Mikilvægt er að gilt netfang sé skráð við félagsaðildina.
  • Ef þú ert ekki félagsmaður þá getur þú skráð þig hér og skráð þig á örfáum mínútum.

SKREF 2 – Umsókn fyllt út:

  • Þegar komið er inn á mínar síður er hægt að sækja um þær íbúðir sem eru lausar undir "Sækja um". Hægt er að sækja um fleiri en eina íbúð.
  • Þær íbúðir sem umsækjandi velur safnast saman í „Mínar umsóknir“ á mínum síðum. Mikilvægt er að raða völdum íbúðum í forgangsröð. Við úrvinnslu umsókna er notast við þessa röðun og ef umsækjandi fær íbúð er eytt út úr umsóknarferlinu þeim íbúðum sem eru neðar í röðinni hjá viðkomandi.
  • ATH umsóknarfrestur rennur út á miðnætti þriðjudaginn 7. apríl 2026.

SKREF 3 – Úthlutun:

  • Úthlutunarlisti (listi yfir röð umsækjenda) verður birtur á www.buseti.is kl. 12:00 miðvikudaginn 8. apríl.
  • Tölvupóstur er sendur á efsta umsækjanda á listanum með tilkynningu um úthlutun. Sá umsækjandi verður að staðfesta úthlutunina fyrir kl. 10:00 daginn eftir 9. apríl með því að svara tölvupóstinum. Ef þú svarar ekki er það tekið sem neitun og næsti í röðinni fær íbúðina.

Lánamöguleikar

  • Ef þú hefur í hyggju að taka lán hjá Landsbankanum þarftu að tilkynna það strax á netfangið buseti@buseti.is.
  • Lánið er háð lánareglum Landsbankans og er veitt að undangengnu greiðslumati bankans. Það er flokkað sem fasteignalán.
  • Hámarksupphæð láns er tilgreind í undir hverja og eina íbúð og getur verið til allt að 12 ára. Lánið er með óverðtryggðum breytilegum vöxtum í dag 10,55%. Lántökugjald er kr. 59.900.- Ekki er lánað fyrir kostnaði. Ef lán er tekið til eins árs þá eru vextirnir 9,6%. Ekkert uppgreiðslugjald er á þessu láni. (vextir m.v. 18.3.2026). Í eftirfarandi tengli má lesa um lánakjör vegna kaupa á búseturétti

SKREF 4 – Bráðabirgðasamningur og greiðsla búseturéttar:

  • Ganga þarf frá bráðabirgðasamningi vegna kaupa á búseturétti innan 10 virkra daga frá úthlutun. Þú bókar fund til þess hér.
  • Um leið greiðir þú staðfestingargjald sem er 15% af kaupverði búseturéttar auk umsýslukostnað kr. 150.000.- sem er óafturkræfur. Greiðslan fer fram með millifærslu og gott er að vera búin/n að hafa samband við sinn viðskiptabanka áður ef upphæð fer yfir heimild dagsins.
  • Hægt er að greiða búseturétt að fullu við gerð bráðabirgðasamnins eða dreifa mismuninum með mánaðarlegum greiðslum á byggingartímann. Lokagreiðslan, að hámarki 20% af kaupverði búseturéttar þarf að vera greidd í síðasta lagi 14 dögum fyrir afhendingu íbúðarinnar.
  • Best er að leita til viðeigandi lífeyrissjóðs varðandi upplýsingar um séreignasparnaðar.
  • Ef hjón eða sambúðarfólk ætlar að vera skráð saman á búsetusamninginn þurfa báðir aðilar að vera félagsmenn, hægt er að ganga frá félagsaðild í gegnum heimasíðuna eða á skrifstofu félagsins, árgjaldið er kr. 5.500.-. Ath. báðir aðilar þurfa að mæta á fundinn og skrifa undir bráðabirgðasamninginn.
  • Þegar farið er á milli búsetaíbúða gengur eldri búseturéttur upp í þann nýja, að frádregnum kostnaði. Hér má nálgast verðskrá. Íbúi verður að vera í skilum með búsetugjöldin. Landsbankalán getur færst á milli íbúða. Hvert tilfelli er þó skoðað fyrir sig þegar að samningsgerð kemur. Að öðrum kosti er lán greitt upp.

SKREF 5 – Afhending íbúðar:

  • Fulltrúi frá Búseta framkvæmir úttekt á íbúðinni, ásamt kaupanda og afhendir honum svo lykla. Um leið er skrifað undir búsetusamning sem Búseti sér um að láta þinglýsa.
  • Búsetugjaldið er greitt fyrir fram og þarf að vera greitt tíu dögum fyrir afhendingu íbúðar. Það verður innheimt með kröfu í heimabanka.
  • Athugið að auglýst búsetugjöld taka mið af áætlun sem verður leiðrétt þegar raungjöld falla til og komið er endanlegt fasteigna- og brunabótamat á eignirnar sem og hússjóður þegar húsfélag hefur verið stofnað.

*Birt með fyrirvara um villur og breytingar.