Eirhöfði 3 208 mynd 7

Spurningar og svör

Hér má finna algengar spurningar og svör. Ef þú finnur ekki svar við spurningu þinni getur þú sent okkur tölvupóst buseti@buseti.is.

Almennt

Er Eirhöfði 3 og 5 eitt eða tvö hús?

Eirhöfði 3 og 5 er eitt hús með tveimur stigagöngum.

Hvað eru margar íbúðir af hverri gerð?

1 stúdíó

11 tveggja herbergja

22 þriggja herbergja

5 fjögurra herbergja

2 fimm herbergja

Eru myndavéladyrasími í íbúðunum?

Já það er myndavéladyrasími í öllum íbúðum.

Er gólfhiti eða ofnar í íbúðunum?

Það eru ofnar í öllum íbúðum.

Hvaða íbúðir eru með fataherbergi?

Íbúðir 708 og 803 eru með fataherbergi.

Er dýrahald leyft í húsinu?

Já dýrahald er leyft í húsinu. Farið er eftir lögum um fjöleignahús og reglum Búseta um dýrahald.

Afhverju passar ekki flatamála talan á teikningunni við birt flatamál?

Birt flatamál er brúttó fermetrar þ.e. fermetrar með veggjum, undir innréttingum o.s.frv. Söluteikningarnar sýna hins vegar fermetra hvers herbergis þ.e. gólfflötinn sem þú gengur á. Sem eru nettó fermetrar og alltaf minni tala en sú birta.

Eldhús

Er gert ráð fyrir uppþvottavél í eldhúsi?

Já það er gert ráð fyrir uppþvottavél í íbúðinni og það fylgir frontur fyrir innbyggðar vélar.

Fylgir ísskápur í íbúðinni?

Nei en gert er ráð fyrir hefðbundnum ísskáp í stærð h 187 og b 60 í ísskápahólf.

Eru eldhúseyjur í öllum íbúðum?

Nei, ekki allar íbúðir eru með eldhúseyju.

Íbúðir 207, 308, 309, 314, 409, 408, 414, 413, 507, 506, 512, 511, 606, 605, 611, 610, 705, 704, 709, 801, 802, 803 eru með eldhúseyju.

Er rafmagn í eldhúseyjunum?

Já.

Baðherbergi og þvottarhús

Eru allar íbúðir með sér þvottahúsi?

Nei, íbúðir 709, 801, 802, 803 eru með sér þvottahúsi.

Á baðherbergi er hægt að tengja þvottavél þar?

Já það er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara inná baðherbergi þar sem ekki er sér þvottahús innan íbúðar.

Er innrétting í þvottaherberginu?

Nei, en skolvaskur er á vegg.

Hvaða íbúðir eru með tveimur baðherbergjum?

Íbúðir 708, 801, 802, 803 eru með tveimur baðherbergjum.

Eru walk-in sturtur?

Já, allar íbúðir eru með walk-in sturtum.

Er baðkar í baðherbergjunum?

Nei, allar íbúðir eru með walk-in sturtum.

Sameign

Er bílakjallari?

Já það er lokaður bílakjallari. Ekki allar íbúðir eru með bílastæði í bílakjallaranum.

Eru allar íbúðir með sér bílastæði?

Nei, rúmlega helmingur er með bílastæði í bílakjallara.

Þeir sem eru ekki með bílastæði í bílakjallara, hvar er hægt að leggja?

Það er gert ráð fyrir bílastæðum við húsið. Einnig er verið að byggja bílastæðahús í göngufjarlægð frá húsinu.

Er lyfta?

Já, það er lyfta í báðum stigagöngum.

Verða tengi fyrir rafmagnsbíla í bílakjallara?

Já, en verið er að vinna í útfærslu. Nánari upplýsingar koma síðar.

Verður aðstaða til að þvo bíla í kjallara?

Nei óheimilt er að þvo bíla í kjallara

Get ég keypt auka bílastæði í bílakjallaranum?

Nei, ekki er hægt að kaupa auka bílastæði í bílakjallara.

Eru djúpgámar fyrir ruslið?

Já, það eru djúpgámar fyrir ruslið fyrir framan aðalinnganginn.

Er þvottahús í kjallara?

Nei, allar íbúðir hafa rými fyrir þvottavélar og þurrkara annað hvort í þvottahúsi innan íbúðar eða inni á baðherbergi.

Er hjólageymsla í húsinu?

Já, það eru tvær hjólageymslur í sitthvorum stigaganginum. Önnur hjólageymslan er u.þ.b 80 m2 og u.þ.b. 44 m2 og eru þær báðar með aðkomu á jarðhæð.

Sölu- og afhendingarferlið

Hvar get ég fundið upplýsingar um sölu- og afhendingarferlið?

Við erum að vinna í að setja uppupplýsingasíðu um Eirhöfða og þar verða ýmsar gagnlegar upplýsingar.

Þarf ég að vera félagi Búseta til að geta sótt um íbúð?

Já, aðeins félagar geta sótt um. Úthlutun fer eftir félagsnúmeri. Þú getur skráð þig sem félagi hér.

Hvenær opnar fyrir umsóknir?

25. mars nk.

Hvenær lokar fyrir umsóknir?

Á miðnætti 7. apríl.

Hvenær er úthlutun á íbúðunum?

Úthlutun er 8. apríl kl. 12:00

Hvenær eru íbúðirnar afhentar?

Áætluð afhending er september 2026.

Er hægt að skipta upp greiðslunum fram að afhendingu?

Já, hægt er að skipta greiðslunum fram að afhendingu. Borga þarf búseturéttinn að fullu 2 vikum fyrir afhendingu.

Er hægt að taka lán fyrir lægra en auglýst er?

Auglýst lán er hámarkslán en hver og einn getur valið lægra lán. Nánari upplýsingar hér

Er hægt taka hærra lán en auglýst er?

Nei, því miður er alltaf auglýst hámarkslán.

Ef þörf er á hærri láni mælum við með að hafa samband við þinn viðskiptabanka og athuga hvort þau geta boðið uppá hærra lán. Nánari upplýsingar um lánamöguleikann er hægt að finna hér.

Hvað þarf ég að greiða mikið við undirritun á bráðabirgðasamning?

Þú þarft að greiða 15% af kaupverði ásamt óendurkræfu umsýslugjaldi upp á kr. 150.000.-

Dæmi: Búseturéttur kostar 15.000.000.- þá þarf að greiða 2.250.000 + 150.000, samtals kr. 2.400.000.- við undirritun bráðabirgðasamnings.

Ef þú finnur ekki svar við spurningu þinni ekki hika við að senda á okkur fyrirspurn á buseti@buseti.is.

*Birt með fyrirvara um villur og breytingar